Verð og tilboðspakkar:

Super Villain SX20T

Verð 6.999.000 kr.

Tilboðspakkinn

+ 350.000 kr.

Álklafahlífar framan og aftan, stærri drullusokkar aftan, hálf rúða, varadekksfesting, varadekk á orginal felgu.

35" OBOR dekkjapakkinn

4 stk. + 200.000 kr.

35” OBOR dekk tekin með til viðbótar.

Sama munstur, bara stærri dekk.

OZZ ljósapakkinn

+ 400.000 kr.

40” LED bar með stöðuljósi, tveir 7” kastarar, fjögur vinnuljós, inniljós, rörafestingar, tengilúm og 12 rofa Auxbeam.

Litir í boði:

Hvítur / rauður

Tæknilýsing

T1b dráttarvélaskráning
Hvít númer, tveggja manna


2.000cc turbo GDi, fjórir sílinderar
235 hestöfl
7 gíra sjálfskipting
2WD/4WD + rafmagnsdriflæsing að framan
Slaglengd dempara framan 51 cm. / aftan 53 cm.
265 cm. hjólhaf / 37 cm. undir lægsta punkt
32″ OBOR dekk, 15″ beadlock felgur

Stærð LxBxH: 357x193x182 cm.
Rafmagnsstýri
45 l. bensíntankur
Eiginþyngd 1.300 kg.


Allir bílarnir koma vel útbúnir: 
– K-man 3.0 demparakerfi
– Stór skjár og LED ljós
– TBOX búnaður fyrir síma-app
– Dráttarkúla og 2.040 kg. spil.

Grófar línur

Glæsileg hönnun og beittur framendi gefa strax til kynna hraða og óviðjafnanlega snerpu.

Fullkomin aðstaða

Hátækniþægindi með sportstýri, gírskiptiflipum (paddles) og áhrifamikilli stemmingsýsingu (ambient lighting). Lyftir upplifuninni á hærra plan.

Afkastamikil túrbóvél

Fjögurra strokka 2.0T GDI vél með sjálfskiptingu – þetta er hrein adrenalínsprauta. Með háþróaðri innspýtingu, 235 hestöflum og gríðarlegu togi skilar vélin ótrúlegu afli strax frá lágum snúningi. Super Villain fer létt með að ná allt að 150 km/klst hámarkshraða.

Snjöll 7 gíra skipting

Nútímaleg 7-gíra sjálfskipting með snjallstýringu tryggir hraðar og mjúkar skiptingar. Hún aðlagast aksturslagi þínu og landslaginu hverju sinni, sem tryggir að afl vélarinnar nýtist ávallt til fulls með hámarks þægindum.

Framúrskarandi fjöðrun

Keppnisundirvagn með hágæða, fullstillanlegum K-MAN 2.0/3.0 dempurum. Kerfið býður upp á „High“ og „Low“ stillingar á þjöppun, sem tryggir einstaka getu í torfærum og óviðjafnanleg þægindi á miklum hraða.

Sterkbyggð grind

Öryggi farþega er tryggt með gífurlega sterkri grind úr króm-mólýbden stáli. Hún hámarkar veltuþol og kemur í veg fyrir aflögun á stýrishúsi og þaki við hinar erfiðustu aðstæður.

Þrjár akstursstillingar

Veldu á milli NormalRacing og Climbing til að njóta kraftmikils aksturs með nákvæmlega það afl sem aðstæðurnar krefjast.

Skiptiflipar

Fyrir hámarksstjórnun og sportlega tilfinningu. Skiptifliparnir gera ökumanni kleift að einbeita sér algjörlega að veginum eða slóðanum.

Sportsæti

Þægileg og stillanleg sæti með fjögurra punkta öryggisbeltum, hönnuð fyrir hámarksöryggi og þægindi í hröðum akstri.

Smart Command System

Snjallstýrikerfið dýpkar akstursupplifunina. Á 14 tommu snertiskjánum geturðu skoðað upplýsingar um tækið, notað leiðsögukerfi, streymt tónlist eða stillt vökvastýrið. Allt er innan seilingar í einum skjá sem vinnur með þér í hverri ferð.

Bíllinn í vasanum

Þú getur stillt bílinn þannig að hann virkist aðeins þegar þú nálgast hann (bluetooth). Þú getur líka kveikt á kerfinu þannig að þú þurfir ekki lykil á bílinn. 


Allar upplýsingar í símanum

Bíllinn skilar gögnum í rauntíma yfir í appið, svo þú getur fylgst með til dæmis togi, nýttum hestöflum og hraða á meðan þú ert í túrnum. Í appinu er haldið utan um keyrða km. Þú getur tengst öðrum Segway tækjum í appinu og fylgst með staðsetningu þeirra á korti.


Mikill staðalbúnaður:

Stillanlegt stýri

Dráttarbeisli

Stillanlegt rafmagnsstýri

2.040 kg. spil

Aukahlutir í boði:

Við eigum mikið úrval af aukahlutum til fyrir Segway Super Villain.

Þegar þú kaupir nýtt Segway tæki færðu 20% afslátt af öllum aukahlutum og fría ísetningu.

Fjármögnun:

Öll fjármögnunarfyrirtæki lána fyrir Segway

- Almenna reglan fyrir bílalán hjá bönkunum til einstaklinga er allt að 75% af kaupverði til allt að 5 ára.


- Fyrirtæki geta almennt fengið bílalán hjá bönkunum fyrir allt að 75% af kaupverði án vsk. til allt að 5 ára.


- Hægt er að taka raðgreiðslulán á kreditkort fyrir allt að 1.000.000 kr. í allt að 3 ár, vaxtalaust að 12 mánuðum.


- Hægt er að taka allt að 100% bílalán hjá Pei að 3.000.000 kr. í allt að 4 ár. 


- Hægt er að brúa bilið og taka lán fyrir minni upphæðum hjá Netgíró og Pei. 


Viltu vita meira eða panta SX20T?