

EasyWrap 150
Hengist á þrítengi

EasyWrap 150 er hönnuð fyrir hámarks framleiðni og stöðugleika, hvort sem hún er notuð á litlum dráttarvélum eða öflugum tækjum.
- Einföld þrítengisfesting: EasyWrap 150 vinnur mjög nálægt dráttarvélinni sem tryggir rétta þyngdardreifingu og mikinn stöðugleika, jafnvel á smærri dráttarvélum eða á frambúnaði.
- Hraðasta eins arma plöstunarvélin: Allt að 36 snúningar á mínútu fyrir hámarks afköst.
- Sjálfvirkni: Sjálfvirkar aðgerðir sjá um að stýra ferlinu á þægilegan hátt.
- Hraðskiptikerfi: Einfalt kerfi til að skipta um plast á fljótlegan hátt.
- Stýrimöguleikar: Val um sjálfvirka, hálfsjálfvirka eða handvirka stýringu á vélinni.
Listaverð - 3.249.000 + vsk.

EasyWrap 165 T
Dragtengd á tveimur hjólum

EasyWrap 165T er ein sneggsta pökkunarvél sem í boði er. Tveir armar snúast í kringum rúlluna á allt að 40 snúningum á mínútu fyrir hámarks afköst og bestu heygæði.
- Lágur þyngdarpunktur: Tryggir mikinn stöðugleika, sérstaklega þegar unnið er í halla.
- Öflugur hleðsluarmur: Stilltur án verkfæra og lyftir áreiðanlega öllum rúllum allt að 1,65 m í þvermál og 1.750 kg að þyngd.
- Pökkunarborð: Búið fjórum sterkum beltum og allt að sex keflum sem tryggja að rúllan velti örugglega.
- Staðsetningarstýrður plöstunararmur: Skilar fullkominni skörun á filmu á eftir hvaða dráttarvél sem er, þar sem notast er við raunstaðsetningu en ekki tímastýringu.
- Sjálfvirkar aðgerðir: Sjá um þægilega stýringu á rúllunni í gegnum allt ferlið, frá upptöku til afhleðslu.
Listaverð - 5.249.000 + vsk.
Viltu vita meira eða panta Krone pökkunarvél?
Takk fyrir að hafa samband, við svörum um hæl!
Eitthvað fór úrskeiðis, við höfum ekki móttekið skilaboðin.
