

Highland línan

Tæki hönnuð fyrir brekkur
Highland línan frá Krone er sér lína af framsláttuvélum, snúningsvélum og rakstrarvélum sem hönnuð er fyrir erfiðari aðstæður. Það sem gerir Highland frábrugðin öðrum tækjum er að þau leggjast nær dráttarvélinni og þyngdarpunkturinn er mjög neðarlega. Þannig hefurðu mikið betri stjórn á tækjunum í brekkum og erfiðu landslagi. Við mælum með Highland.
- EasyCut F 280 Highland og F 320 Highland: Þessar fyrirferðarlitlu og léttu framsláttuvélar eru búnar vökvastýrðri hliðartilfærslu til að tryggja hámarksafköst í miklum halla.
- Vendro 420, 620 og 820 Highland: Léttar snúningsvélar með nýju KRONE OptiTurn rótorunum og vélrænni kantdreifingu fyrir skilvirka vinnslu í halla.
- Swadro S 350 Highland og S 380 Highland: Þessar einnar stjörnu rakstrarvélar eru með ný beisli sem eru sérstaklega hönnuð fyrir minni dráttarvélar. „Lift“-tindarnir eru beygðir á tveimur stöðum og raka grasinu í snyrtilega og kantaða múga, jafnvel í mjög bröttu landslagi.
EasyCut F Highland
Framsláttuvélar
- Lágur þyngdarpunktur og tenging nálægt dráttarvélinni tryggja að Highland sláttuvélarnar skila framúrskarandi árangri í brattlendi.
- Vökvastýrð hliðartilfærsla er innbyggð í tengi framsláttuvélarinnar til að vinna gegn því að dráttarvélin renni til í halla.

| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| EC F280 Highland | 2,73 m | 55 hö | 6 diskar | 2.449.000 + vsk. |
| EC F320 Highland | 3,17 m | 65 hö | 7 diskar | 2.849.000 + vsk. |
Vendro Highland
Snúningsvélar
- Hin fullkomna hönnun - Þökk sé Krone OptiTurn rótorhönnuninni tryggir vélin ávallt hreina upptöku. Jöfn dreifing og góð öndun styttir þurrktímann til muna.
- Á þessar vélar er hægt að fá vökvastýrða kantdreifingu (aukabúnaður) sem nýtist afar vel þegar unnið er í brekkum. Vökvademparar tryggja hljóðláta vinnslu og stöðugleika án þess að vélin renni til í halla.

| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| Vendro 420 Highland | 4,18 m | 34 hö | 4 stjörnur x 5 armar | 1.599.000 + vsk. |
| Vendro 620 Highland | 6,16 m | 50 hö | 6 stjörnur x 5 armar | 2.349.000 + vsk. |
| Vendro 820 Highland | 8,14 m | 65 hö | 8 stjörnur x 5 armar | 3.199.000 + vsk. |
Swadro Highland
Einnar stjörnu rakstrarvélar
- Lipur og fimi í hvers kyns landslagi - Nýja og fyrirferðarlitla beislið á Swadro Highland rakstrarvélunum er með tengipunkt nálægt dráttarvélinni. Þetta veitir hámarksstöðugleika fyrir örugga vinnu í bröttum hlíðum.
- Fullkomin vinnubrögð - DuraMax stýribrautin stýrir örmum og tindum – sem eru beygðir á tveimur stöðum – fyrir hraðvirka og nákvæma vinnu og hreina múga í öllum aðstæðum.

| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| Swadro S 350 Highland | 3,50 m | 30 hö | 10 armar x 4 tindar | 1.499.000 + vsk. |
| Swadro S 380 Highland | 3,80 m | 30 hö | 10 armar x 4 tindar | 1.549.000 + vsk. |
Viltu vita meira eða panta Krone Highland vél?
Takk fyrir að hafa samband, við svörum um hæl!
Eitthvað fór úrskeiðis, við höfum ekki móttekið skilaboðin.
