
Verð og tilboðspakkar:
Villain SX10X
Verð 3.999.000 kr.

Tilboðspakkinn
+ 370.000 kr.

Aksturstölva, hurðalokanir að neðan, klafahlífar og drullusokkar framan og aftan, felgusköfur, varadekksfesting, varadekk á orginal felgu og aukareim.
LOBO dekkjapakkinn
4 stk. + 180.000 kr.

32” LOBO RC dekk tekin með til viðbótar.
Stór og mjúk sem vetrardekk.
OZZ ljósapakkinn
+ 400.000 kr.

40” LED bar með stöðuljósi, tveir 7” kastarar, fjögur vinnuljós, inniljós, rörafestingar, tengilúm og 12 rofa Auxbeam.
Litir í boði:
Hvítur / rauður

Svartur / grænn

Grár / svartur

Mattsvartur

Tæknilýsing
T1b dráttarvélaskráning
Hvít númer, tveggja manna
1.000cc fjórgengismótor, tveir sílinderar DOHC
105 hestöfl, 93.5 Nm tog
CVT reimdrif (sjálfskipting)
2WD/4WD
Slaglengd dempara framan 38 cm. / aftan 40 cm.
259 cm. hjólhaf / 36 cm. undir lægsta punkt
29″ dekk, 14″ beadlock felgur
Stærð LxBxH: 334x163x180 cm.
Rafmagnsstýri
44 l. bensíntankur
Þyngd 860 kg.
Allir bílarnir koma vel útbúnir:
– 10.4″ stór snertiskjár
– Gasdemparar hringinn
– Diskabremsur hringinn
– TBOX búnaður fyrir síma-app
– Dráttarkúla og 2.040 kg. spil.


Vönduð hönnun
Hönnun sem er bæði frumleg og úthugsuð. Háir brettakantar verja bæði bílinn og farþega fyrir drullu og grjótkasti. Skarpur framendi með hágæða LED-ljósum gefur Villain sportlegt útlit og tryggir jafnframt frábært útsýni fram á veginn. Allt er hannað með eitt markmið í huga – að veita þér einstaka upplifun í kraftmiklum utanvegaakstri.

Læsanlegt mismunadrif að framan
Með læsanlegu drifi að framan fær Villain aukið grip á hálu, lausu eða drullugu undirlagi, bæði í snjó og grýttu landslagi. Þú munt finna muninn í krefjandi brekkum þar sem hvert dekk þarf að skila hámarks afli. Læsanlegt drif gerir þér kleift að nýta 4x4 kerfið af fyllstu skilvirkni og að fara um erfitt landslag með fullu öryggi.

Hámarks þægindi
Hækkanlegt stýri, stillanleg sæti, fjögurra punkta öryggisbelti og stórt, skýrt stafrænt mælaborð – allt gert til þess að þú hafir fulla stjórn á bílnum á einfaldan hátt.

Öflug vél
Ný kynslóð af afkastamikilli, vatnskældri tveggja strokka vél sem skilar 105 hestöflum og 93,5 Nm togi. Hún býður upp á ótrúlegt afl og snerpu fyrir keyrslu og fjör í óbyggðum.
- Olíukældir stimplar: Sérstakar stútar sprauta olíu undir hvern stimpil til að kæla þá niður á skilvirkan hátt. Niðurstaðan er mikið áreiðanleiki og hámarksafköst vélarinnar.
- Tvöfalt kælikerfi: Með sjálfstæðum vatns- og olíukælum vinnur vélin alltaf við kjörhitastig, jafnvel við erfiðustu aðstæður.

Sterk grind
Sterkbyggð grind úr króm-mólýbden stáli sem er mun öflugra en hefðbundið stál. Þessi sterka og endingargóða smíði tryggir framúrskarandi endingu og stöðugleika.

Framúrskarandi fjöðrun
Í Villain er allt gert af krafti. Fullkomlega stillanlegir gasfylltir demparar með mikilli slaglengd og öflugar stífur gefa þér sjálfstraust í hvaða landslagi sem er.

Stór bensíntankur
Með risastórum 44 lítra eldsneytistanki geturðu kannað fleiri slóðir og farið lengra án þess að hafa áhyggjur af næstu bensínstöð.

Bíllinn í vasanum
Þú getur stillt bílinn þannig að hann virkist aðeins þegar þú nálgast hann (bluetooth). Þú getur líka kveikt á kerfinu þannig að þú þurfir ekki lykil á bílinn.
Allar upplýsingar í símanum
Bíllinn skilar gögnum í rauntíma yfir í appið, svo þú getur fylgst með til dæmis togi, nýttum hestöflum og hraða á meðan þú ert í túrnum. Í appinu er haldið utan um keyrða km. Þú getur tengst öðrum Segway tækjum í appinu og fylgst með staðsetningu þeirra á korti.
Mikill staðalbúnaður:
Stillanlegt stýri

Dráttarbeisli

Öflug LED ljós

2.040 kg. spil

Stillanlegt rafmagnsstýri

Beadlock felgur

Diskabremsur hringinn

Tenging við app

Aukahlutir í boði:
Við eigum mikið úrval af aukahlutum til fyrir Segway Villain.
Þegar þú kaupir nýtt Segway tæki færðu 20% afslátt af öllum aukahlutum og fría ísetningu.
Fjármögnun:
Öll fjármögnunarfyrirtæki lána fyrir Segway

- Almenna reglan fyrir bílalán hjá bönkunum til einstaklinga er allt að 75% af kaupverði til allt að 5 ára.
- Fyrirtæki geta almennt fengið bílalán hjá bönkunum fyrir allt að 75% af kaupverði án vsk. til allt að 5 ára.
- Hægt er að taka raðgreiðslulán á kreditkort fyrir allt að 1.000.000 kr. í allt að 3 ár, vaxtalaust að 12 mánuðum.
- Hægt er að taka allt að 100% bílalán hjá Pei að 3.000.000 kr. í allt að 4 ár.
- Hægt er að brúa bilið og taka lán fyrir minni upphæðum hjá Netgíró og Pei.
Viltu vita meira eða panta SX10?
Takk fyrir að hafa samband, við svörum um hæl!
Eitthvað fór úrskeiðis, við höfum ekki móttekið skilaboðin.




















































