

ActiveMow
Hliðtengdar sláttuvélar

Þægileg á alla kanta
Einar einföldustu sláttuvélar sem völ er á í dag. Þær koma með öllum helstu nauðsynjum sem staðalbúnaði, eins og hraðskiptihnífum og diskavörn. Sláttuborðið er lokað og svo til viðhaldsfrítt. Þessar vélar eru því einfaldur, öruggur og hagkvæmur kostur.
- Hliðartengingin - Býður upp á mikla færslu upp og niður.
- Stillanleg gormafjöðrun - Sem þú stillir án verkfæra.
- Sterkbyggt sláttuborð - Lítið sem ekkert viðhald.
- Hraðskiptihnífar - Þú skiptir um hnífa án fyrirhafnar.
- SafeCut diskavörn - Hver diskur er með sitt eigið öryggi.
- Stór driftannhjól - Hámarks nýting og lágmarks hávaði.
- Vinna vel í halla - Einn mesti kosturinn við hliðartenginguna er hversu mikið er hægt að hífa og slaka vélunum.
| Tegund | Vbr. | Þyngd | Aflþörf | Útbúnaður | Tilboðsverð 2027 |
|---|---|---|---|---|---|
| AM R200 | 2,05 m | 490 kg. | 37 hö | 5 diskar | 1.401.650 + vsk. |
| AM R240 | 2,44 m | 550 kg. | 41 hö | 6 diskar | 1.529.150 + vsk. |
| AM R280 | 2,83 m | 605 kg. | 55 hö | 7 diskar | 1.656.650 + vsk. |
| AM R320 | 3,22 m | 650 kg. | 68 hö | 8 diskar | 1.784.150 + vsk. |
| AM R360 | 3,61 m | 740 kg. | 75 hö | 9 diskar | 1.869.150 + vsk. |
Á snertiskjám gæti þurft að draga töfluna til. Verð miða við gengi EUR = 136 ISK. Innifalið í verði er samsetning og afhending heim á hlað.

EasyCut R
Miðjuhengdar sláttuvélar

Sláttur án málamiðlana
Það sem einkennir EasyCut sláttuvélarnar eru þægindi fyrir notandann, nákvæmur skurður, áreiðanleiki og ending. Vélarnar eru hannaðar fyrir mikla notkun og eru þekktar fyrir lipurð. Drifið er á sláttuborðinu sjálfu svo öll vélin getur leikið á miðjuhenginu. Þannig elta EasyCut vélarnar túnin vel. Fáar vélar komast nálægt Krone hvað varðar endingu og lítið slit. Sláttuborðið er lokað, þarfnast lítils viðhalds og er ótrúlega hljóðlátt.
- DuoGrip miðjuhengið - Tryggir góðan og nákvæman slátt.
- Fáanlegar með og án knosara - Öruggt að þú finnur vél sem hentar þér. Nokkrar gerðir knosara eru í boði en öflugur stáltindaknosari verður oftast fyrir valinu.
- Sterkbyggt sláttuborð - Lítið sem ekkert viðhald.
- SafeCut og hraðskiptihnífar - Allt úthugsað.
- Mikil fjöðrun - EasyCut burðararmarnir eru Z-laga sem gera það að verkum að fjöðrunin getur ferðast 29° upp og 20° niður.
| Tegund | Vbr. | Þyngd | Aflþörf | Útbúnaður | Tilboðsverð 2027 |
|---|---|---|---|---|---|
| EC R280 | 2,73 m | 780 kg. | 55 hö | 6 diskar | 1.911.650 + vsk. |
| EC R280CV | 2,73 m | 1.120 kg. | 70 hö | 6 diskar - knosari | 2.919.200 + vsk. |
| EC R320 | 3,17 m | 840 kg. | 68 hö | 7 diskar | 2.124.150 + vsk. |
| EC R320CV | 3,17 m | 1.260 kg. | 80 hö | 7 diskar - knosari | 3.239.200 + vsk. |
| EC R360 | 3,60 m | 1.040 kg. | 75 hö | 8 diskar | 2.379.150 + vsk. |
| EC R360 Collect | 3,60 m | 1.650 kg. | 150 hö | 8 diskar - söfnun | 3.781.650 + vsk. |
| EC R400 | 4,04 m | 1.050 kg. | 130 hö | 9 diskar | 2.676.650 + vsk. |
| EC R450 | 4,47 m | 1.250 kg. | 150 hö | 10 diskar | 3.144.150 + vsk. |
Á snertiskjám gæti þurft að draga töfluna til. Verð miða við gengi EUR = 136 ISK. Innifalið í verði er samsetning og afhending heim á hlað.

EasyCut F
Framsláttuvélar

Nýstárlegar framvélar
Framsláttuvélarnar frá Krone sameina nettan búnað, góða jarðfylgni og nákvæman slátt. F320 og F360 án knosara byggja á nýrri G4-hönnun sem er létt og fyrirferðarlítil. Einnig eru í boði öflugar CV-vélar með stáltindaknosara og breiðar F400-vélar fyrir meiri afköst.
- Nettar og léttar vélar – Fyrirferðarlítil hönnun með þyngdarpunkt nálægt dráttarvélinni.
- Festast beint á þrítengi – Engan A-ramma þarf til viðbótar.
- Einnig í boði dregin útfærsla – F320 og F360, með og án knosara, fást með dreginni tengingu og vökvafjöðrun.
- Fáanlegar með og án knosara – Veldu útfærslu sem hentar þínum aðstæðum.
- Frá 3,17 m upp í 4,04 m vinnslubreidd – F400 Fold er með samanbrjótanlegu sláttuborði sem minnkar flutningsbreiddina.
- SafeCut diskavörn og hraðskiptihnífar – Vörn fyrir drifbúnaðinn og einföld hnífaskipti.
| Tegund | Vbr. | Þyngd | Aflþörf | Útbúnaður | Tilboðsverð 2027 |
|---|---|---|---|---|---|
| EC F320 | 3,17 m | 680 kg. | 65 hö | 7 diskar | 2.166.650 + vsk. |
| EC F320 dregin | 3,17 m | 840 kg. | 65 hö | 7 diskar | 2.464.150 + vsk. |
| EC F320CV | 3,17 m | 1.280 kg. | 80 hö | 7 diskar - knosari | 3.359.200 + vsk. |
| EC F320CV dregin | 3,17 m | 1.460 kg. | 80 hö | 7 diskar - knosari | 3.719.200 + vsk. |
| EC F360 | 3,60 m | 760 kg. | 70 hö | 8 diskar | 2.549.150 + vsk. |
| EC F360 dregin | 3,60 m | 920 kg. | 70 hö | 8 diskar | 2.804.150 + vsk. |
| EC F360CV | 3,60 m | 1.380 kg. | 90 hö | 8 diskar - knosari | 3.719.200 + vsk. |
| EC F360CV dregin | 3,60 m | 1.560 kg. | 90 hö | 8 diskar - knosari | 4.079.200 + vsk. |
| EC F400 Fold | 4,04 m | 1.650 kg. | 100 hö | 9 diskar - Fold | 4.929.150 + vsk. |
| EC F400CV | 4,04 m | 1.750 kg. | 100 hö | 9 diskar - knosari | 4.959.200 + vsk. |
Á snertiskjám gæti þurft að draga töfluna til. Verð miða við gengi EUR = 136 ISK. Innifalið í verði er samsetning og afhending heim á hlað.

EasyCut B
Fiðrildi - sláttuvélatvenna

Breitt úrval fiðrilda
Krone býður upp á breitt úrval fiðrildasláttuvéla. Þær fást með og án knosara og í vinnslubreiddum allt frá 7.46 m. upp í 12.50 m. Svo eru þær einnig fáanlegar í Collect útfærslu, sem safnar grasinu saman í miðjumúg.
| Tegund | Vbr. | Þyngd | Aflþörf | Útbúnaður | Tilboðsverð 2027 |
|---|---|---|---|---|---|
| EC B870 | 8,62 m | 1.350 kg. | 120 hö | 2 × 7 diskar | 5.199.200 + vsk. |
| EC B880CV | 8,72 m | 2.950 kg. | 150 hö | 2 × 7 diskar - knosari | 7.599.200 + vsk. |
| EC B1000 | 10,00 m | 1.750 kg. | 140 hö | 2 × 8 diskar | 5.879.200 + vsk. |
| EC B1050CV | 10,45 m | 3.540 kg. | 200 hö | 2 × 8 diskar - knosari | 9.719.200 + vsk. |
| EC B950 Collect | 9,46 m | 2.988 kg. | 160 hö | 2 × 8 diskar - miðjusöfnun | 9.159.200 + vsk. |
| EC B880CV Collect | 8,72 m | 3.650 kg. | 170 hö | 2 × 7 diskar - knosari - miðjusöfnun | 10.079.200 + vsk. |
| EC B1050CV Collect | 10,45 m | 3.990 kg. | 200 hö | 2 × 8 diskar - knosari - miðjusöfnun | 12.199.200 + vsk. |
| EC B1250 Fold | 12,50 m | 3.850 kg. | 200 hö | 2 × 10 diskar - Fold | 9.279.200 + vsk. |
| EC B1250CV Fold Collect | 12,50 m | 5.200 kg. | 300 hö | 2 × 10 diskar - knosari - miðjusöfnun - Fold | 17.719.200 + vsk. |
Á snertiskjám gæti þurft að draga töfluna til. Verð miða við gengi EUR = 136 ISK. Innifalið í verði er samsetning og afhending heim á hlað.
Við bjóðum 10% auka afslátt af framvélum með keyptu fiðrildi.

EasyCut TS/TC
Dragtengdar sláttuvélar

Fyrir flóknu verkefnin
Dragtengdar sláttuvélar fyrir sérstakari aðstæður. Dragtengdu vélarnar frá Krone eru fáanlegar í vinnslubreiddum frá 2.73 m. að 3.60 m. Þær fást með beinni miðjufestingu og svo einnig hliðarfestingu. Einnig fást þær með og án knosara.
| Tegund | Vbr. | Þyngd | Aflþörf | Útbúnaður | Tilboðsverð 2027 |
|---|---|---|---|---|---|
| EC 2801CV | 2,73 m | 2.020 kg. | 70 hö | 6 diskar - knosari - hliðardráttur | 4.559.200 + vsk. |
| EC TS320 | 3,17 m | 1.260 kg. | 68 hö | 7 diskar - hliðardráttur | 4.291.650 + vsk. |
| EC TS320CV | 3,17 m | 2.150 kg. | 80 hö | 7 diskar - knosari - hliðardráttur | 5.199.200 + vsk. |
| EC TC320CV | 3,17 m | 2.450 kg. | 80 hö | 7 diskar - knosari - miðjudráttur | 6.119.200 + vsk. |
| EC TS360CV | 3,60 m | 2.730 kg. | 90 hö | 8 diskar - knosari - hliðardráttur | 6.199.200 + vsk. |
Á snertiskjám gæti þurft að draga töfluna til. Verð miða við gengi EUR = 136 ISK. Innifalið í verði er samsetning og afhending heim á hlað.
Viltu vita meira eða panta Krone sláttuvél?
Takk fyrir að hafa samband, við svörum um hæl!
Eitthvað fór úrskeiðis, við höfum ekki móttekið skilaboðin.
