Verð og tilboðspakkar:

AT5L

Verð 1.349.000 kr.

Tilboðspakkinn

+ 100.000 kr.

- Farangursbox að aftan

- Hitahandföng

- Aksturstölva

Bulldog dekkjapakkinn

+ 100.000 kr.

- Uppfærsla í 26" Bulldog dekk

- Kantaðari og tommu breiðari


OZZ ljósapakkinn

+ 200.000 kr.

- 20" LED bar með stöðuljósi

- Tvö vinnuljós

- Fjögurra rofa Auxbeam

- Festingar og tengilúm


Litir í boði:

Hvítt / rautt

Tæknilýsing

T3b dráttarvélaskráning
Hvít númer, tveggja manna


499cc fjórgengismótor, einn sílinder DOHC
39 hestöfl / 44 Nm tog
2WD/4WD hátt/lágt drif 
145 cm. hjólhaf / 25 cm. undir lægsta punkt
Þyngd (með vökvum og fullum tank) 389 kg.

Stærð LxBxH: 230x118x135 cm.
19 l. bensíntankur
25×8-12 framan / 25×10-12 aftan


Öll hjólin okkar koma vel útbúin:
– TBOX búnaður fyrir app fylgir
– Rafmagnsdriflæsingar hringinn
– EPS Rafmagnsstýri
– 12″ áfelgur
– 25″ CST Abuzz dekk
– Diskabremsur hringinn
– Verklegar handahlífar
– Sjálfstæð fjöðrun hringinn
– 1.130 kg. spil og dráttarkúla
– LED ljós og sætisbak

Snjallt afl

Í AT5L er 499cc. DOHC mótor sem er einn öflugasti mótor sem í boði er í 500 flokknum. Hann skilar 39 hestöflum og 44Nm togi, sem fer þessari stærð af hjóli vel.

CVTech skipting

AT5L hjólin koma með sjálfskiptingu á reim frá kanadíska framleiðandanum CVTech. Aflið skilar sér fyrirstöðulaust út í hjól sem skilar sér í mjúkum akstri og minni bensíneyðslu.

Öflug LED ljós

Við tökum öll hjólin inn með öflugum LED ljósum sem lýsa að 400.000 lúmenum. Þau gefa um 60% meiri birtu heldur en hefðbundin halogen ljós og lýsa töluvert lengra.

Stillanlegt rafmagnsstýri

Í hjólunum er rafmagnsstýri sem aðlagar sig sjálft miðað við aksturshraða og aðstæður, til dæmis hvort hjólið sé í fjórhjóladrifi og læsingum. Þú getur svo valið í appinu á milli þriggja stillinga um það hversu þungt eða létt þú vilt hafa stýrið. 

Mismunadrif framan og aftan

Mismunadrif að bæði framan og aftan gerir hjólin mun mýkri í akstri, léttari í stýri og stöðugri á vegi. Bæði drifin eru svo læsanleg, í sitthvoru lagi að framan og aftan, svo þú getur drifið hvert sem er og losað þig úr öllum aðstæðum. 

Diskabremsur hringinn

AT5L koma með diskabremsum allan hringinn. Þannig notar þú aðeins eitt bremsuhandfang eða fótbremsuna til að taka jafnt á öllum hjólum í einu. Hitt bremsuhandfangið er svo hefðbundin handbremsa með vír aftur, sem virkar þá sem neyðarbremsa. 

Hjólið í vasanum

Þú getur stillt hjólið þannig að það virkist aðeins þegar þú nálgast það (bluetooth). Þú getur líka kveikt á kerfinu þannig að þú þurfir ekki lykil á hjólið. 


Allar upplýsingar í símanum

Hjólið skilar gögnum í rauntíma yfir í appið, svo þú getur fylgst með til dæmis togi, nýttum hestöflum og hraða á meðan þú ert í túrnum. Í appinu er haldið utan um keyrða km. Þú getur tengst öðrum Segway hjólum í appinu og fylgst með staðsetningu þeirra á korti.


Mikill staðalbúnaður:

Mjúkt sætisbak

Dráttarbeisli

Digital skjár

Handahlífar

100 kg. burðargrindur

1.130 kg. spil

Stillanlegt rafmagnsstýri

Diskabremsur hringinn

Flottar 12" álfelgur

Öflug LED ljós

Stuðarar

Tenging við app

Aukahlutir í boði:

Við eigum mikið úrval af aukahlutum til fyrir Segway AT5.

Þegar þú kaupir nýtt Segway fjórhjól færðu 20% afslátt af öllum aukahlutum og fría ísetningu.

Fjármögnun:

Öll fjármögnunarfyrirtæki lána fyrir Segway

- Almenna reglan fyrir bílalán hjá bönkunum til einstaklinga er allt að 75% af kaupverði til allt að 5 ára.


- Fyrirtæki geta almennt fengið bílalán hjá bönkunum fyrir allt að 75% af kaupverði án vsk. til allt að 5 ára.


- Hægt er að taka raðgreiðslulán á kreditkort fyrir allt að 1.000.000 kr. í allt að 3 ár, vaxtalaust að 12 mánuðum.


- Hægt er að taka allt að 100% bílalán hjá Pei að 3.000.000 kr. í allt að 4 ár. 


- Hægt er að brúa bilið og taka lán fyrir minni upphæðum hjá Netgíró og Pei. 


Viltu vita meira eða panta AT5?