24.990 kr.

Loading product data...

Felgusköfur/vörn Segway Villain

Enginn nennir að burðast með aukakíló af drullu innan í felgunum sem eyðileggur jafnvægið og eykur slitið. Þessar drullusköfur frá XRW eru hreinasta snilld; þær skafa innan úr afturfelgunum jafnóðum svo drullan hleðst ekki upp, jafnvel í verstu aðstæðum. Þetta heldur tækinu léttara og kemur í veg fyrir óþarfa titring í akstri.


  • Stillanlegt bil: Þú getur stillt fjarlægðina frá felgunni svo hún passi fullkomlega og skafi sem best.
  • Sveigjanleg lausn: Virkar hvort sem þú ert með spacera eða ekki, en mælt er með 35mm breikkun fyrir bestu niðurstöðuna á orginal felgunum.
  • Fyrir original felgur: Hönnunin er sérsniðin til að smella beint í upprunalegu felgurnar á Villain SX10.
  • Grjóthörð smíði: Smíðaðar úr stáli og MIG-soðnar til að þola barsmíðarnar og álagið sem fylgir drullunni.
  • Pakkinn: Inniheldur tvær sköfur (hægri og vinstri) fyrir bæði afturhjólin.