24.990 kr.
Loading product data...
Dekkjastrappi á skottlok
Þessi dekkjastrappi hentar aðeins með skottlokunum frá XRW á bæði Villain og Super Villain.
Enginn nennir að elta varadekkið sitt niður hlíðina eftir hressilegt stökk. Þessi sterka Y-festiól frá XRW er hönnuð til að halda dekkinu þínu nákvæmlega þar sem það á að vera– fast á sínum stað. Hún er smíðuð úr sérstaklega sterku pólýester-vefnaði sem þolir íslenskan hristing og ruddalega meðferð.
- Einstaklega þægileg: Ólin er í einu lagi (one-piece design), svo þú ert ekki að missa hluta af henni niður í drulluna þegar þú ert að græja dekkið.
- Passar á allt: Alveg "universal" hönnun sem hentar fyrir nánast allar stærðir af dekkjum, líka þessi stóru og feitu.
- Snögg í notkun: Kemur með "quick-release" smellulás (ratchet) og J-krókum, svo það tekur enga stund að losa eða festa.
- Grjóthörð smíði: 35 mm breiður pólýester-vefnaður með mikla togþolshæfni (high tensile strength).
- Innifalið í settinu: Smellulás, J-krókar, stillanlegar ólar og miðjuplata – allt sem þarf til að binda dekkið niður.

Vinsælar vörur:
Sjá meira













