249.990 kr.

Loading product data...

Plasthlífasett Segway Super Villain XRW

Ef þú ætlar að láta Super Villain-inn þinn vinna fyrir kaupinu sínu í grjóti og drullu, þá er þetta settið sem þú vilt hafa undir tækinu. Þessar hlífar frá XRW eru smíðaðar úr 8mm seigu PHD plasti. Þetta er snjöll leið til að verja undirvagninn án þess að bæta mikilli þyngd við tækið.


  • Heildarvörn: Settið er sérsniðið fyrir nýja SX20 og dekkar allan undirvagninn frá framenda til afturenda.
  • Sleipt og seigt: Smíðað úr 8mm þykku PHD 300 plasti (háþéttni pólýetýlen) sem er einstaklega höggþolið.
  • Engar dældir: Ólíkt áli, þá bognar plastið ekki eða dældast varanlega; það fjaðrar og heldur áfram að verja tækið.
  • Hljóðlátara: Plastið deyfir hljóð frá steinkasti og titringi mun betur en álhlífar, sem gerir aksturinn aðeins þægilegri.
  • Létt hönnun: Þú færð hámarksvörn án þess að fórna snerpunni í Super Villain-num þínum.