5.990 kr.
Loading product data...
Gorilla Coat & Seal vatnsþéttihúð svört
Þessi vara er aðeins fáanleg í vefverslun og í verslun okkar á Akureyri.
Gorilla Coat & Seal er sveigjanleg þéttihúð sem lokar fyrir vatn, loft og raka. Fljótandi gúmmíhúðin jafnar sig á yfirborðinu og fyllir smærri sprungur og rifur. Hana má bera á með pensli eða rúllu, eða hella á viðeigandi flöt, til dæmis við viðgerðir á þakrennum, niðurföllum og þakflötum.
- Magn: 473 ml.
- Litur: Svartur.
- Gerð: Fljótandi, sveigjanleg gúmmíhúð.
- Notkun: Innan- og utandyra, á hreint yfirborð án ryks, fitu og olíu.
- Undirbúningur: Hrærið í 30 sekúndur fyrir notkun.
- Ásetning: Við 10–48 °C. Ekki ætlað í rifur breiðari en 6 mm.
- Hersla: Full hersla á 24–48 klukkustundum. Látið harðna milli umferða og áður en húðin kemst í snertingu við vatn.
go11110073

Vinsælar vörur:
Sjá meira








