149.900 kr.
Loading product data...
Uniden R8W radarvari
Hér er á ferðinni algjör toppur í radarvörum. Uniden R8w er hlaðinn tækni sem veitir þér hámarksvörn og lágmarkar pirrandi falsboð. Þetta er tækið fyrir þá sem vilja það allra besta og nákvæmasta í bílinn.
- Örvar og tvöfalt loftnet: Tækið sýnir þér með örvum nákvæmlega úr hvaða átt mælingin kemur (framan, aftan eða frá hlið).
- Innbyggt GPS og Wi-Fi: Tækið „lærir“ á leiðirnar þínar. Það man hvar falsboð eru og þagnar sjálfkrafa þegar þú átt leið þar um næst.
- App-stýring: Þú getur uppfært tækið og breytt stillingum beint í gegnum síman þinn með Wi-Fi tengingu.
- Fullkomnar síur (K/Ka Band): R8w er sérstaklega hannaður til að sía út merki frá nýlegum bílum (blindpunktsmæla, fjarlægðarskynjara o.fl.) svo hann pípi ekki að ástæðulausu.
- Tilbúið til notkunar: Tækið afhendist forstillt og uppfært fyrir íslenskar aðstæður, svo þú þarft bara að stinga því í samband.
- Varað við myndavélum: Lætur þig vita af hraðamyndavélum og rauðljósamyndavélum með raddskilaboðum.
Hvað er í kassanum?
- Radarvarinn sjálfur
- Festingar: Tvær gerðir af sogskálum (venjulegar og ein stór solid) ásamt frönskum rennilás fyrir mælaborðið.
- Snúrur: Gormasnúra í kveikjaratengi og USB snúra fyrir uppfærslur.
- Beintengibúnaður: Uniden „hardwire“ snúra með hljóðdeyfingarhnappi (mute) fylgir með.
ozz-unir8w

Vinsælar vörur:
Sjá meira

















