199.990 kr.

Loading product data...

Segway SGW2700I rafstöð

Hér erum við með netta og öfluga lausn fyrir þá sem þurfa áreiðanlegt rafmagn fjarri innstungum. Hvort sem það er fyrir útileguna, í bátinn, upp í bústað eða sem varaafl heima við, þá skilar SGW2700i verkinu vel.


  • Mikil afköst: Skilar 2100W í stöðugri keyrslu en nær allt að 3000W í ræsingu (starting power), sem dugar fyrir ísskápinn, ljósin, verkfærin og öll rafeindatækin.
  • Hljóðlát vinnsla: Með hljóðstig upp á aðeins 52-59 dB(A) (mælt á 7m) geturðu dregið andann og notið kyrrðarinnar án þess að vélarhljóðið yfirgnæfi allt.
  • Létt og meðfærileg: Vegur aðeins 19,5 kg, sem gerir hana að einni meðfærilegustu rafstöðinni í sínum flokki. Auðvelt að kippa henni með í bílinn eða geyma hana í skottinu.
  • Löng ending: Getur keyrt í allt að 5 til 20 klukkustundir samfleytt (eftir álagi), svo þú þarft ekki að vera stöðugt að spá í eldsneytinu.
  • Hleðslutengi fyrir allt: Auk venjulegra innstunga er hún með USB-tengi (5V/2A) og 12V/8A „kveikjaratengi“, svo þú getur hlaðið síma og spjaldtölvur beint.
  • Mál: 512 x 315 x 447 mm – Fellur vel inn í flest geymsluhólf og skott.