

ActiveMow
Hliðtengdar sláttuvélar

Þægileg á alla kanta
Einar einföldustu sláttuvélar sem völ er á í dag. Þær koma með öllum helstu nauðsynjum sem staðalbúnaði, eins og hraðskiptihnífum og diskavörn. Sláttuborðið er lokað og svo til viðhaldsfrítt. Þessar vélar eru því einfaldur, öruggur og hagkvæmur kostur.
- Hliðartengingin - Býður upp á mikla færslu upp og niður.
- Stillanleg gormafjöðrun - Sem þú stillir án verkfæra.
- Sterkbyggt sláttuborð - Lítið sem ekkert viðhald.
- Hraðskiptihnífar - Þú skiptir um hnífa án fyrirhafnar.
- SafeCut diskavörn - Hver diskur er með sitt eigið öryggi.
- Stór driftannhjól - Hámarks nýting og lágmarks hávaði.
- Vinna vel í halla - Einn mesti kosturinn við hliðartenginguna er hversu mikið er hægt að hífa og slaka vélunum.
| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| AM R200 | 2,05 m | 37 hö | 5 diskar | 1.699.000 + vsk. |
| AM R240 | 2,44 m | 41 hö | 6 diskar | 1.849.000 + vsk. |
| AM R280 | 2,83 m | 55 hö | 7 diskar | 2.049.000 + vsk. |
| AM R320 | 3,22 m | 68 hö | 8 diskar | 2.149.000 + vsk. |
| AM R360 | 3,61 m | 75 hö | 9 diskar | 2.299.000 + vsk. |

EasyCut R
Miðjuhengdar sláttuvélar

Sláttur án málamiðlana
Það sem einkennir EasyCut sláttuvélarnar eru þægindi fyrir notandann, nákvæmur skurður, áreiðanleiki og ending. Vélarnar eru hannaðar fyrir mikla notkun og eru þekktar fyrir lipurð. Drifið er á sláttuborðinu sjálfu svo öll vélin getur leikið á miðjuhenginu. Þannig elta EasyCut vélarnar túnin vel. Fáar vélar komast nálægt Krone hvað varðar endingu og lítið slit. Sláttuborðið er lokað, þarfnast lítils viðhalds og er ótrúlega hljóðlátt.
- DuoGrip miðjuhengið - Tryggir góðan og nákvæman slátt.
- Fáanlegar með og án knosara - Öruggt að þú finnur vél sem hentar þér. Nokkrar gerðir knosara eru í boði en öflugur stáltindaknosari verður oftast fyrir valinu.
- Sterkbyggt sláttuborð - Lítið sem ekkert viðhald.
- SafeCut og hraðskiptihnífar - Allt úthugsað.
- Mikil fjöðrun - EasyCut burðararmarnir eru Z-laga sem gera það að verkum að fjöðrunin getur ferðast 29° upp og 20° niður.
| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| EC R280 | 2,73 m | 55 hö | 6 diskar | 2.249.000 + vsk. |
| EC R280CV | 2,73 m | 70 hö | 6 diskar - knosari | 3.449.000 + vsk. |
| EC R320 | 3,17 m | 68 hö | 7 diskar | 2.499.000 + vsk. |
| EC R320CV | 3,17 m | 80 hö | 7 diskar - knosari | 3.849.000 + vsk. |
| EC R360 | 3,60 m | 75 hö | 8 diskar | 2.799.000 + vsk. |
| EC R400 | 4,04 m | 90 hö | 9 diskar | 3.199.000 + vsk. |
| EC R450 | 4,50 m | 100 hö | 10 diskar | 3.699.000 + vsk. |

EasyCut F
Framsláttuvélar

Nýstárlegar framvélar
Framsláttuvélarnar frá Krone eru mjög nýstárlegar eftir að þær fengu allsherjar uppfærslu fyrir ekki svo löngu. Það mætti halda að þessar vélar hafi verið hannaðar með Ísland í huga þar sem línan heitir M, eða Mountain, og hentar því einstaklega vel í landslaginu okkar.
- Mountain vélar sniðnar fyrir Ísland - Enn nettari og léttari vélar.
- Í boði hefðbundin úfærsla - Lágbyggð og festist beint á þrítengi.
- Einnig í boði dregin útfærsla - Sláttuborðið hvílir á miðjuhengi sem festist á þrítengið og er með vökvafjöðrun í stað gorma.
- Fáanlegar með og án knosara - Öruggt að þú finnur vél sem hentar þér.
- Allt frá 2.73 m. upp að 4.04 m. - Ótrúleg 4 m. vinnslubreidd á F 400 Fold.
- SafeCut diskavörn - Hver diskur er með sitt eigið öryggi.
| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| F320M | 3,17 m | 65 hö | 7 diskar | 2.649.000 + vsk. |
| F320CV | 3,17 m | 80 hö | 7 diskar - knosari | 3.949.000 + vsk. |
| F360M | 3,60 m | 70 hö | 8 diskar | 3.049.000 + vsk. |
| F360CV | 3,60 m | 90 hö | 8 diskar - knosari | 4.349.000 + vsk. |
| F400 Fold | 4,04 m | 100 hö | 9 diskar | 6.099.000 + vsk. |
| F400 CV | 4,04 m | 100 hö | 9 diskar - knosari | 5.849.000 + vsk. |
Allar 320 og 360 vélar er hægt að fá í dreginni útfærslu fyrir 299.900 + vsk. aukalega.

EasyCut B
Fiðrildi - sláttuvélatvenna

Breitt úrval fiðrilda
Krone býður upp á breitt úrval fiðrildasláttuvéla. Þær fást með og án knosara og í vinnslubreiddum allt frá 7.46 m. upp í 10.10 m. Svo eru þær einnig fáanlegar í Collect útfærslu, sem safnar grasinu saman í miðjumúg.
| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| B870 | 8.62 m | 130 hö | 2 x 7 diskar | 6.449.000 + vsk. |
| B880CV | 8,72 m | 150 hö | 2 x 7 diskar - knosari | 9.149.000 + vsk. |
| B1000 | 10,00 m | 140 hö | 2 x 8 diskar | 7.299.000 + vsk. |
| B1050CV | 10,10 m | 150 hö | 2 x 8 diskar - knosari | 11.699.000 + vsk. |
| B950 Collect | 9,45 m | 160 hö | 2 x 8 diskar - safnar að miðju | 11.049.000 + vsk. |
Við bjóðum 10% auka afslátt af framvélum með keyptu fiðrildi.

EasyCut TS/TC
Dragtengdar sláttuvélar

Fyrir flóknu verkefnin
Dragtengdar sláttuvélar fyrir sérstakari aðstæður. Dragtengdu vélarnar frá Krone eru fáanlegar í vinnslubreiddum frá 2.73 m. að 3.60 m. Þær fást með beinni miðjufestingu og svo einnig hliðarfestingu. Einnig fást þær með og án knosara.
| Tegund | Vbr. | Aflþörf | Útbúnaður | Listaverð án vsk. |
|---|---|---|---|---|
| 2801 CV | 2,73 m | 70 hö | knosari dragt. til hliðar | 4.999.000 + vsk. |
| TS 320 | 3,17 m | 80 hö | dragt. til hliðar | 4.699.000 + vsk. |
| TS 320 CV | 3,17 m | 80 hö | knosari dragt. til hliðar | 5.699.000 + vsk. |
| TC 320 CV | 3,17 m | 80 hö | knosari dragt. í miðju | 6.699.000 + vsk. |
| TS 360 CV | 3,60 m | 90 hö | knosari dragt. til hliðar | 6.799.000 + vsk. |
Viltu vita meira eða panta Krone sláttuvél?
Takk fyrir að hafa samband, við svörum um hæl!
Eitthvað fór úrskeiðis, við höfum ekki móttekið skilaboðin.
